Tvenn grammys? Ertu að tala um grammyin sem þú fékkst fyrir söng þinn í Litlu Hafmeyjunni? Ég braust óvart inn í íbúð áðan, ætlaði að fara í heimsókn til vinkonu minnar sem kallaði niður til mín að það væri opið. Ég opnaði hurðina, fór inn í myrkvaða forstofu, gekk inn fyrir, heilsaði kettinum og kveikti ljósið. Fjórar hurðir í boði. Best að finna stigagangshurðina. Opnaði eina, tvær, þrjár og fjórar hurðir áður en ég fattaði að það var enginn stigagangur inni í þessari íbúð, þetta var bara einhver jarðhæðaríbúð sem var ólæst og mannlaus! Ég drullaði mér út sem skjótast og fann síðan rétta útidyrahurð til að komast inn um...sheesh...Móri á sko ekki séns í mig núna..atvinnukrimmi mæ ess...I´m thö kingpin!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home