fimmtudagur, febrúar 20

Já! Trommi tromm segir maður nú bara...magnað að hafa trommusett í íbúðinni! Fór í kvöld og skoðaði herbergi í Jordaan hverfinu, sem er ógeðslega næs hverfi og eiginlega draumahverfið mitt i Andskotam. Herbergið var svona um það bil einn fimmti af rúmmáli núverandi herbergis míns og kostaði um 490 evrur, meðan núverandi herbergið mitt kostar rétt undir 300 ojrós. Og er fimm sinnum stærra, rúmmálslega séð. Frekar vondur díll iff jú ask me. En þetta er kreyyyzí hverfi, maður alveg engdist um af því að hjóla þarna...En samt gott að skoða svona díla, nú er maður sáttari þar sem maður er... Bæðö vei, gaurinn sem ég talaði við hét Nacho. Er það ekki aðeins of súrt nafn til að bera? Getur íslenskur karlmaður heitið Hrútspungur? Austfirsk kona heitið Skyr? Mmm...skyr...

Var annars á tónleikum í kvöld, sá mjög skemmtilegt heimstónlistar-djók band, hljómar mjög illa en var ótrúlega skemmtilegt, á eftir þeim kom freejazz bigband, stjórnað af manni sem minnti mig ótrúlega mikið á Pál Óskar. Alltaf gaman að horfa á ubergay stjórnendur. Og svo var þriðji básúnuleikari í draggi með bleika hárkollu. Annar básúnuleikari er fáviti, en hann er víst með mér í bandi. Hann er sænskur og er með svo rosalega útværan persónuleika (á kostnað innværs sjálfstrausts) að maður fer að halda að hann leigi vídeókamerur til að fylgjast með sér og stúderi þær síðan eftirá. Og svo er hann líka með tagl. Jæja.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home