miðvikudagur, febrúar 19

Haaæ krakkeilles, þá er Google bara búið að kaupa Bloggerinn. Ókei. Bragi, þú ert hér með skipaður arkívustjóri og útprentari á sannleiksbakstri síðustu ára. Ég var annars að ljúka við að skrifa niður píanóútsetningu fyrir skólann. Fáránlegt hvað þetta getur tekið langan tíma miðað við hvað þetta er lítið flókið. Var síðan nett andvaka í nótt út af mús sem var að krafsa í gólflistana, sennilegast inni í veggnum. Gebbað pirrandi. Og síðan er ég með nokkuð sem gæti kallast kuti eða rýtingur í hálsinum, þriðja daginn í röð. Get sumsé ekki róterað höfði mínu til vinstri án þess að vera stunginn. Asnalegt. Benni, kíkirðu ekki í heimsksókn áður en þú ferð í aumingjafrí til Íslands?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home