Maður trassar þessa síðu í tvo daga og þarf að stilla á síðustu 50 pósta! Jáh það það þarf ekki að toga uppúr ykkur ruglið, ha, það bara vellur út um öll vit og yfir heimshöfin ef því er að skipta.
Meika ekki alveg að hugsa um trompetkennarann með gleraugað...það minnir mig á þegar Ella Vala var að tala um að hún gæti ekki notað túrtappa þegar hún spilaði á hornið.
Ástríður var barin í bænum á föstudagsnóttina! Það sat fyrir henni maður þegar hún var ein á leið heim, togaði hana niður á hárinu og kýldi hana af öllu afli í andlitið. Ógeð maður. Sem betur fer náðist hann og hún er búin að kæra hann. Greyið hún er öll blá og marin og fór ekki útúr húsi þartil á þriðjudaginn, þá kom hún í karate. Haha! Það fannst henni vandræðalegt því þetta er jú sjálfsvarnaríþrótt. Við lærðum rétta öndun í þessum tíma og að spenna mjöðmina fram þegar við kýlum. Ef hún hefði lent í þessu einum karatetíma seinna hefði hún ábyggilega stútað gaurnum. Öndunin er allt sko.
Aðeins ein spurning að lokum: Eruð þið allar systur, og hvar er Bragi?!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home