Ástríði mun batna snarlega á morgun því þáætla að ég að gefa henni pastagerðarvél. Það þykir mér sniðug gjöf því í leiðinni fæ ég matarboð til baka. Auður: ætlaðir þú ekki að vera með? Einu sinni reyndum við Ástríður að gera pasta og eyddum þrjátíuogtveimur eggjarauðum í eitthvað ógeð sem var einsog leggangahettur með gráðastafyllingu. MMMMMmmmmmmmmunið að greiða afnotagjöldin. Hei vissuð þið að Alexander Scriabin var ótrúlega geðveikur, sko ekki opinberlega, en að mínu mati. Tónlistin hans hljómar einsog eitthvað kukl, tarottónlist eða eitthvað svona dularfullt annarlegt klígjulegt ógeð. Hlustið á 10. píanósónötuna hans ef þið viljið heyra lófalestur spilaðan á píanó. Hann var ábyggilega í dópi. Samt er þetta soldið flott e-nveginn. Maður dáleiðist af þessu. Hann var líka með samskynjun á heilanum og bjó til orgel sem varpaði litum uppá vegg, þ.e. hver tónn átti sinn lit. Þetta hefur verið svipað ambientkvöldunum í Norðurkjallara hér í denn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home