Mikið er þetta nú fínt. Fór í gær í sushipartí til Valda, drakk sake og úðaði í mig hráum fiski mér til mikils ánægjuauka. Við horfðum líka á geðveika Bollywood mynd sem ég keypti í gær. Hún heitir Naag Shakti og fjallar, að okkur skildist, um einhvern snákaguð sem var bannfærður og eiginkonan hans þurfti að fasta í ellefu daga og svo var einhver kona sem gat ekki eignast börn. Þriðja hver setning var sko þýdd á ensku. Ég fann nebblega alveg geðveika búð rétt hjá mér sem selur alveg heilu bílfarmana af myndum og tónlist frá Indlandi, Pakistan og Tyrklandi og örugglega eitthvað fleira. Ég var alveg gapandi þegar ég kom inn, það var svo ótrúlega mikið af einhverri fokkt opp tónlist frá útlöndum þarna. Hvernig er stemmarinn þarna over there in Iceland?
http://www.dazzled.com/dangermuff/bollybob/rnaag.html

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home