miðvikudagur, febrúar 19

Egill ætlar að búa til hljóðeinangrandi búr fyrir trommusettið okkar. Búrið verður byggt með tréprikum, pappakössum og dýnum og verður staðsett með trommusettinu inni í einu horni herbergisins. Þetta verður framkvæmt um leið og við kaupum trommusettið sem nú er staðsett í einu hljóðfærabúðinni Lundi.

Ég er líka búin að fá "leyni" óvinkonu í kúrsi sem ég er að lesa aukalega. Við erum saman í hópverkefni og hún er viljandi ósammála öllu sem ég segi. Hún er frekar óþolandi en allir hinir eru ok. Hún er samt ekki eins óþolandi og Emmí sem er fyrsta óvinkonan mín í Lundi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home