fimmtudagur, febrúar 13

Aumingja Ástríður!
Sunna er að flytja út 1 apríl og við fáum eitt auka herbergi sem við erum ekki alveg búin að ákveða hvað við viljum gera við. Egill vill breyta því í trommuherbergi sem mér finnst mjög góð hugmynd.
Ég er búin að vera í tiltektarkasti alla vikuna og er að fara að byrja á skápunum. Ég er farin að halda að ég eigi mér ekkert líf. Ég þarf ekkert að mæta í skólann en á reyndar að vera að skrifa próf sem ég á að skila 24 feb.
Við Egill erum hætt að hreyfa okkur og förum allt á bílnum. Þetta er ekki góð þróun en það er ógeðslega kalt úti. Eiginlega svo kalt að ef við værum ekki með bíl þá færum við ekki út.
Ástarkveðjur! Sérstaklega til Ástríðar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home