Hó! Er staddur í vorhreingerningu að hlusta á Hauk Morthens drekka "dauðans og þína skál" og deyja úr mjög víðtækri og yfirgripsmikilli dramatík. En það er allt í lagi. Nú er hann að rifja upp æsku sína í björtum haga þar sem sól gyllir engi og hlíð. Mmm, vorhreingerning. Ég keypti mér heimasíma í gær, númerið mitt er: 00 31 20 668 0567. En það stefnir samt allt í að ég fái mér nýtt númer, so evríboddí kúl áðí að reyna að hringja í mig í hrönnum...ég læt vita þegar nýja númerið er komið. Ég er að spá í hvort ég ætti að reyna að fiska eitt djönkíbæk fyrir Sverri á eftir...en eigi þýðir að blaðra svona út í eitt, því mín bíður blaut tuska sem krefst aðstoðar minnar við að gefa borðinu exótískt nudd. Oj.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home