Um hvern var skrifað í blöðinn þegar hann fæddist? Hver á heima í húsi á litlum punkti sem sést ekki svo greinilega á milli stórra hringja á einhverskonar korti? Hver er skáldlegur? Guðmann eða Hermann?
Jæja krakkarar! Hér er ég. Egill. Skrifandi eins og aldrei áður. Ég er í fríi. Ég held að skólagangan mín í þessu landi hafi í rauninni bara verið eitt langt frí. Samt ekki þannig frí að ég hafi getað farið til suður evrópu eitthvað að chilla. Nei, meira svona eins og upplestrarfri en það eru einmitt verstu fríin. Maður er einhvernveginn frjáls en samt ekki. Maður getur alveg sofið út en er svo með samviskubit yfir því að hafa ekki vaknað fyrr til að læra. Trikkið er að hafa ekki áhyggjur. Segja bara við sjálfan sig: Þetta reddast! Allt saman! Ég horfði á hinn svokallaða kynþáttahatara í silfri Egils á strik punktur is í gær. Hvað var maðurinn að pæla. Þetta var eins og að horfa á menntaskólanema á náttúrufræðibraut vera að rífast við Albert Einstein um réttmæti afstæðiskenningarinnar. Hann sagði ekkert að viti. Hann gat ekki einu sinni látið vitleysuna hljóma vel. Melanín. Nú er verið að spila nýja Manic Street lagið í sjónkanum. Ef Manics og U2 sameinast væri örugglega hægt að koma á heimsfriði.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home