fimmtudagur, mars 29

Ekki láta blekkja tig, Sverrir, Elísabet er ekkert annad en auglysingaherferd fyrir magaæfingatækid Elite Abs. Tú hefur verid valinn inn í dulinn hóp tilraunadyra sem verda fórnarlömb tessarar auglysingaherferdar. Ef ad er gád má sjá ad Elísabet er dulnefni og stafarugl á Elite Abs. Eigandi fyrirtækisins er Hafsteinn í Dairy Queen, en hann er einmitt einn sá skædasti í auglysinga-og kynningarherferdum hér á landi. Tessi hugmynd er upprunalega komin frá Japan. Innan skamms mælir tú tér grunlaus mót vid Elísabet og bydur henni í raudvínsdreitil og tapas heima hjá tér. Tegar tú sídan opnar dyrnar hid örlagaríka kvöld mun blasa vid tér madur á trítugsaldri í svörtum og neonbleikum Elite Abs tolfimigalla. Ef vel er gád má sjá ad hann er einnig styrktur af Jónatan Livingston Mávi, en tad er önnur saga. Tetta kvöld mun hann ítrekad halda tví fram ad hann heiti Elísabet, en sökum vel tjálfads sjónminnis tíns muntu sjá ad tetta er engin Elísabet, tetta er sjálfur Magnús Scheving. Hann rydst inn og dregur upp úr pússi sínu Elite Abs tækid (executive version). Tad fyrsta sem tú tekur eftir er hversu létt og medfærilegt tækid er. Tú ert einnig hrifinn af möttu, krómudu yfirbordinu, sem ljáir tækinu fágadan blæ. Magnús skellir tækinu á gólfid og hefur umsvifalaust æfingar. Sökum vel tjálfads sjónminnis tíns minnist tú ekki ad hafa séd neinn mann skemmta sér jafn vel vid magaæfingar, og tú getur ekki annad en gladst med Magnúsi yfir tessu einstaka tæki. Eftir nokkrar laufléttar æfingar getur tú ómögulega haft nokkud á móti manninum og bydur honum ad fá sér sæti og tiggja tetta lítilrædi sem á bodstólum er. Tremur klukkustundum og mörgum hláturrokum sídar hefur tú fest kaup á Elite Abs Executive Version og ert alsæll. Tremur mánudum og mörgum trælskemmtilegum magaæfingum sídar kviknar á litlu raudu ljósi í Elite Abs og hús titt springur í loft upp. Ekki láta plata tig, Sverrir...EKKI SVARA NÆSTA SÍMTALI!!

neinei. bara ad djóka.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home