Svíar eru ofbóðslega miklir keppnismenn. Það er nánast óþolandi. Það er varla hægt að fara í olsen olsen við þá án þess að þeir verða ógeðslega pirraðir yfir því að tapa eða sturlast úr gleði þegar þeir vinna........ Og það er mjög pirrandi að tapa á móti Svía. Hann byrjar að útskýra það hversvegna hann vann en ekki þú. Hann segir þér að þú sért í rauninni mjög góður og að þú hafir bara verið óheppin. Um dagin fórum við Dagný í saklaust Bakkamón spil á kaffihúsi við Pontus og Johan. Þeir einbeittu sér svo mikið að spilinu að hvorki var hægt að tala við þá um dagsins önn né líðandi stund. Svo unnu þeir og fóru að hlæja. Ég og Dagný urðum frekar gáttuð á þessu öllu saman en hlógum samt með. Þegar við svo stóðum upp til að fara, sögðu þeir að við ættum ekki að vera sár yfir að hafa tapað. Þeir sögðust hafa haft heppnina með sér og enda væri þetta í fyrsta skiptið sem við höfðum spilað bakkamón. Fyrr má nú keppnisandi kallast.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home