mánudagur, mars 19

Tvílík tiltrif syndi ég í dag tegar ég hreinsadi ískáp minn af innanmeinum og fornum pestum. Tetta var ótrúlegt. Mér lídur eins og ég hafi ekki adeins hreinsad ískáp, heldur einnig sál mína í leidinni. Kannski tetta sé efni í skáldsögu? Jafnvel fimm binda metsöludjók?

Sídan vil ég fagna ákaflega teim einstaklingum er birtu persónu sína í bréfalúgu minni í morgun. Djöfull var gaman ad fá tvö bréf í einu! Tjekk it át sko. Sverrir og Gudrún Dalía fá femm stjörnur fyrir sjálf sig í dag. Ì gær fengu Benni og Bragi sitthvora stjörnuna fyrir símtal um lífid og ad lokum fékk Audur Jöfursdóttir stjörnu fyrir blogg sitt í gær. Hún er skondin píka. Èg mun halda áfram ad gefa vinum mínum stjörnur fyrir athæfi sitt í framtídinni. Tannig geta tau verid viss um ad einhver fylgist med teim og lætur sér annt um líf teirra. Ì lok hvers árs mun sídan birt uppgjör tímabilsins í Lögbirtingabladinu og kemur tar væntanlega í ljós hver er besta manneskja hvers tímabils. Tid skiljid ekki ad lífid er einskis vert án frammistödumats og samanburdar. En tetta er heilagur sannleikur, rétt eins og nidursodnar ferskjur í krukku eru sannleikurinn í sinni hreinustu mynd.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home