laugardagur, mars 10

Òóó ég tarf ad vidurkenna nokkud, og tad er ad ég er ad jafnadi reidubúinn tví ad bíllinn sem ég labba framhjá hverju sinni innihaldi bílasprengju á vegum IRA og muni ad sjálfsögdu springa í sídu mína eins og prayer. En ég er stoltur af tví. Tetta er samt eiginlega bara bundid vid eina götu fyrir nedan skólann í Gautaborg. Hún er einhvern veginn svo bílasprengjuleg. Ò já, og George Bush ætlar ad koma til Gautaborgar á næstunni á EU rádstefnu. Hvad geri ég tá? Fel mig undir rúminu í trjá daga?

Einnig fór ég á tónleika med Marilyn Mazur and her band í gærkvöldi. Tetta var slagverksband med fjórum slagverkskonum og einni söngkonu. Klædnadur: Afrísk sjöl og heimstónlistarwear frá 1987-90. Einhverra hluta vegna vard tetta band ad kvenréttindatilkynningu, tó svo ad tær hafi ekki sagt neitt um neitt tví tengt. Tær urdu bara svona óafvitandi statement án tess ad hafa nokkud til tess unnid. Tjáning systralags eins og aldrei fyrr. Tær voru líka allar svo gladar á svidinu. Ein var meir ad segja svo glöd ad hún vard ad tákngervingi post-menopausal success á adeins fimm mínútunum og hélt tví sídan áfram tad sem eftir lifdi kvölds. Hún var meiradsegja glöd eftir tónleikana tegar hún var ad róta. Já, tvílík kona. Tess ber ad geta ad tetta voru frábærir tónleikar. Og nú er ég farinn (nú er ég faarinn) Nú er ég faarinn og búinn ad vera, spennandi torp, ekkert hægt ad geraa, NÚ ER ÉG FAARINN (sjúbb, sjúbb, sjehei)

Ekki allir vita tad ad Sálin hans Jóns míns var stofnud á sínum tíma sem soul og fönk band. En tad er önnur saga.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home