laugardagur, mars 24

Èg hef ödlast hæfileikann til ad skilja konur. Og tá meina ég ekki ad ég skilji sænsku, tví sænsku hef ég skilid í fleiri mánudi. Èg á vid ad ég fékk leiftrandi innsyn inn í kvenlægt sálarlíf nyinnflutts gangafélaga míns. Hún heitir Kajsa og hatar karlmenn. Hún tönnlast á tví ad menn séu svín. Gegnum samtöl vid vidfangsefnid hef ég komist ad tví ad hún á fósturfödur. Geri ég rád fyrir tví ad líffrædilegur fadir hennar sé í raun réttri svín og hafi yfirgefid fjölskylduna fyrir tuttugu og triggja ára gamlan ritara sinn. Ef grunur minn reynist réttur búa tau nú á nektarnylendu á Bali og fadirinn hefur aldrei samband. Hún hefur ordid fyrir vonbrigdum med födur sinn og yfirfærir reynslu sína af honum yfir á gervallt mannkyn. Ef til vill átti hún leidinlegan kærasta í fortídinni. Foreldrar hennar eru sósíaldemókratar og vinna sem pólitíkusar. Kajsa drekkur lífrænt ræktada mjólk og fer í gáfnafarslegt reipitog vid fólkid á ganginum. Kajsa er í læknisfrædi. Kajsa er ad leita ad födur sínum.

Med tessum einstaka hæfileika mínum til ad skilja konur mun ég túra um Tyskaland nú í ágúst og bjóda adstod mína hvar sem mín er törf. Umbodsskrifstofa mín er í Nürnberg, sími 064 48 49160 19. Hringdu núna! Einnig má bóka mig á heimasídu minni, www.thevaginalsympathiser.com.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home