Heyrst hefur ad Bragi Bergtórsson ætli jafnvel ad tékka á Lundi næstkomandi föstudag, og verdur tá aldeilis kátt í höllinni. Tad er ad segja tá verd ég líka í Lundi, og einnig er sú stadreynd vída tekkt ad Egill og Dagny eru ad jafnadi geografískt stadsett í Lundi. Og tá erum vid ekki ad tala um pólitíska landafrædi, heldur raunverulega, fysíska landafrædi. Altso líkamar teirra dveljast ad jafnadi í Lundi. Sál teirra er hins vegar alltaf á Ìslandi, innan um tröll og álfadrottningar. Er einhver sem er ekki skilur mig enntá? Tannig ad tad tydir ad fjórir kátir krakkar munu hittast næstu helgi og rifja upp æskuárin. Altso vid myndum tá sennilega fara skipulega yfir æskuárin og jafnvel skipa einn ritara í hópnum. Sídan verdur tetta allt saman rakid og sídan verdur tetta gefid út í litlu hefti (gefid út af Steglu Hf) sem verdur dreift í finnskar matvöruverslanir fljótlega upp úr áramótum. Hins vegar er alls ekki meiningin ad fara eitthvad ad skemmta sér ad ödru leyti. Já nei nei.
Hér fyrir nedan kemur sídan einföldud útgáfa textans fyrir níu ára og yngri:
Hó, sagdi Eiríkur og lyfti sér á tá. Bragi vinur hans ætlar ad koma til Lundar á föstudaginn. Eiríkur ætlar líka ad koma til Lundar á föstudaginn. Ì Lundi ætla Bragi og Eiríkur ad hitta Egil og Dagnyju. Hvad eru mörg L í tví?
Og sídan loks, kjarni setningarinnar, fyrir alla tá sem yfir höfud nenna ekki ad lesa meira en trjá stafi í einu:
Vei!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home