Jahå, ég fór í bæinn í dag og keypti mér kaffi á McDonalds og fór ad fylgjast med kröfugöngunni á Avenyn. Hún var mjög stór og tad var mikid um kommúnista. Èg gerdi mér grein fyrir tví ad tad er ekki tad gáfulegasta í heimi ad horfa skælbrosandi á kröfugöngu kommúnista med McDonalds plastglas í hendinni. Èg hefdi alveg eins getad haft skilti sem stód á "ég styd heimsvaldasinnana" eda "lengi lifi kapitalisminn". Og tad var tá sem ég uppgötvadi ad ég hef enga hugsjón. Ætli tad sé ekki best ad drífa sig í Kringluna á morgun og kaupa sér hugsjón.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home