föstudagur, maí 18

Gærdagurinn, í tad minnsta seinni hluti gærdagsins var glimrandi og skartadi dagsljósi í skandinavískum byggingum, klassískri tónlist og bodsgestum. Löng saga, en í stuttu máli fylgdist ég med trompetsamnemendum mínum spila verkin sín fyrir hvorn annan, og sídan máttu allir gera athugasemdir. Tad var mjög gaman. Bengt, trompetkennari vor, er magnadur kennari. Og sídan fékk ég hrós fyrir gódan árangur í vetur og gekk út úr stofunni og nidur í kaffiteríuna/anddyrid/andfengid. Tar var fullt fullt af gömlu fólki ad borda fínan mat og drekka hvítvín. Allt í einu rak ég augun í vini mína sem stódu vid bord og bordudu nákvæmlega sama mat og drukku nákvæmlega sama vín, og teir sögdu mér ad ná mér í mat og vín. Sem ég og gjördi. Tetta var gedveikur matur. Sídan var einhver danssyning/happening úti í útigardinum sem var ótrúlega flott med fáránlega fallegri túlkun á sellósvítum Bachs (í hátalarakerfinu). Èg skildi syninguna sem svo ad hún fjalladi um Lífid. Og sídan drukkum vid meira hvítvín og héldum nidur á Stage Door, stúdentapöbb skólans. Og tar hélt kvöldid áfram sinn vanagang. Sum sé, frábært gærkvöld. Èg er ad hugsa um ad tilnefna alla laugardaga sem fimmtudaga. Tad er ad segja ad hvern laugardag skal hugsa sem óvenjugódan fimmtudag. Jafnvel.

En nú er ég í gódu skapi og gekk jafnvel laugaveg á leidina í skólann og sá fullt af ellilífeyristegum nidri í bæ. Èg held ad tad sé einhvers konar temadagur hjá Gautaborg. Celebrating our Elders Day. Eda Retirees Appreciation Day. Eda eitthvad. HEJA LUND! HÄR KOMMER JAG! Èg fer til Lundar klukkan eitt í dag og tad er bara ansi brádum. Best ad hita upp á sér trompetinn ádur en lagt er í hann. Tetta var ógedsleg setning. Bless!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home