mánudagur, maí 21

Tad var einhver gamall jazzunnandi á Ìslandi sem sagdi ad hann fengi svo sérstaka tilfinningu undir bringspalirnar tegar hann heyrdi Gerry Mulligan spila. Tad tótti mér skemmtilega sagt.

Èg var á ágætis hádegistónleikum. Tar var flutt lag sem minnti gjörsamlega á rólega kaflann í Paranoid Android. Èg held meir ad segja ad tetta hafi verid sá kafli, bara med nyrri melódíu. Allavega, tad var bara flott. Og ég efast líka svona hálfpartinn um ad píanóleikarinn sem samdi tad hafi hlustad eitthvad ad rádi á Radiohead. Tad gera tad fæstir. Sumir hafa jafnvel aldrei heyrt talad um Radiohead. Tetta er undarleg tjód.

Èg takka Agli, Dagnyju og Braga fyrir afskaplega skaplega helgi og hún var afskaplega skapleg og gód. Swingbandinu fannst mikid til okkur koma og sagdi ad vinir mínir hefdu virst "trevliga". Einnig munum vid hafa verid fyllri en tau, sem er ad sjálfsögdu enn eitt skrefid í átt til sigurs Ìslands yfir Svítjód. Vid sigrudum.

Ferdin til Lundar og fundurinn vid the gang var líka skemmtileg áminning um hvad mér lídur ágætlega hérna úti og hvad ég á eftir ad sakna skólans og Gautaborgar. Altso madur fær smá perspektív á sjálfan sig tegar madur hittir aftur gömlu vinina og eitthvad. Ekki tad ad tid séud leidinleg...ahem...annars byst ég vid lokanidurstödu og mati dvalarinnar nokkrum vikum eftir ad ég kem heim. Annad er ómögulegt. Enginn veit hvad á fyrr en misst hefur, eda svoleidis.

Djöfull var gaman í lestinni! Èg elska X2000! Òtrúlega hljódlítil lest og hún fer obbosslega hratt og allt! Og sídan hef ég uppgötvad ad tad er varla hægt ad lesa Wallpaper á betri stad en í hradlest í Svítjód. Madur fær svo fallega mynd inn í hugann, af tví ad madur er ad ferdast, í eins konar millibilsástandi milli stada. Grasid er hvorki grænna hérna megin eda hinum megin vid ána, af tví ad madur er staddur mitt inni í ánni og getur kúplad huganum út úr grasgrænkuhugleidingum. Madur er hvorki hér né tar, madur er á leidinni og tá er huganum frjálst ad dreyma. Og sídan er manni kippt út úr bladlestrinum af tví ad heyrnartólin manns tjást af sambandsleysi í vinstra tólinu. Eins og ad drekka raudvín á fínum veitingastad og sídan hellir madur nidur. Kippt inn í hversdagsleikann af tví ad tad er ekki annad hægt, hann er í yfirtyrmandi magni allt í kringum mann. Offrambod á hversdagsleikanum...jájá.

Hérna ég bara veit ekki lengur hvad ég meina og ég ætla ad fara ad fá mér Shake med Bear og Martin.

Bluss

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home