prump prump fret
Já það er margt skrýtið í kýrhausnum. Mig rennur í grun um að ég hafi verið að hlusta á of leiðinlega tónlist síðustu vikur. Fyrir einhvern misskilning hef ég verið að hlusta á vel útfærða og nytsamlega tónlist, sem er örugglega eitt það sterílasta sem maður getur látið yfir sig dynja. Assgotans leiðindi, ég hef bara misst stjórn á sjálfum mér í heilan mánuð! (eða frekar haft stjórn á mér) Svona er það ef maður æfir sig of mikið... Ástæðan fyrir þessari upplýsingu er að ég fór til Valda í gær og fékk "lánaðar" nokkrar plötur úr safninu hans, meðal annars nokkrar illa útfærðar og afskaplega ónytsamar plötur. Guði sé lof fyrir þannig plötur...bíddu er að koma vor? Ókei allir að hlusta á frídjass og The Darkness núna! Skítt með jólalögin! Nema það sé jólalagið með Darkness!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home