laugardagur, desember 27

búsráð

Djöfszuuss mahúr, djamm í gær var af hinu bezta tagi, fór á Gus Gus og Tra Bant á Na Sa í gær og andi jólanna sveif yfir vötnum. Hins vegar hitti ég engan Sverri. Hvað er það? Hvar var Sverrir? Var hann kannski á Diskókvöldi Margeirs? Er það kannski bara málið?

djöfull er maður nú annars iðinn við það að henda rusli út í alnetið...næst þegar ég blogga lofa ég að það verði um eitthvað mikilvægt og mannbætandi (eins og til dæmis fimm sniðugar kokkteiluppskriftir úr hráefni sem er til á öllum heimilum, eða stutt spjall um sparperur)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home