laugardagur, desember 13

Keikó is sterben!!

Njús flassj! Keikó dáinn! Draumurínn er búínn krakar, þyetta eyr auþólandey mail, kv eigum vi a gyeera nauuuna?! Hopa á rassgitiið o broosa? neeeeeee

e r a n n a r s r o s a h r e s s f o r a b l i n t s t e f n u m o t i g æ r g e b b a ð s t u ð o g l æ t i

fór samt í alvörunni og hitti stelpu sem er dóttir austurrískra hjóna sem mamma og pabbi þekkja lauslega. Það var ógnar-spennandi að labba inn á barinn og geta sér til um hver þeirra væri hún. "Það er sennilegast þessi stelpa sem situr þarna ein," hugsaði ég með mér og dró upp rósabúntið og brosti afar dularfullt til hennar og sagði sæl elskan mín, fyrirgefðu að ég lét þig bíða svona lengi. Ég tafðist aðeins í sjálfboðavinnunni minni á munaðarleysingjahælinu. Hann Klaas hefur verið að taka svo miklum framförum nýlega. Yndislegt barn. Viltu smá spíra útí kakóið þitt? Síðan dró ég upp lítinn grænan nammipoka með rækjum í og byrjaði að éta. Ég elska sjávarrétti, sagði ég og tók af mér einglyrnið í augnablik til að leggja áherslu á orð mín. "Ég er í félagsfræði og viðskiptafræði í háskólanum hérna í Amsterdam" sagði hún. Hún hafði ekkert einglyrni til að veifa þannig að ég missti einhvern veginn af því sem hún sagði. Skrýtin stelpa, hugsaði ég og pantaði mér gulrótarsafa með engum klökum.

já neinei bara djók svona getur maður nú verið flippaður þegar maður er þunnur og nývaknaður

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home