gleðilegan fyrsta desember; það er gaman.
Jó! Ástríður velkomin! Vei! Ég sit hérna sjálfur og er að drekka kornfleks með kaffi og er ad hlusta á Chet Baker plötu sem ég keypti í gær. Platan er safn af bestu lögum þeirra Lerner og Loewe í flutningi Bakers og félaga. Lögin bera nöfn eins og Thank heaven for little girls, I've grown accustomed to her face og I talk to the trees. Þessi plata er reyndar ekkert sérlega góð. Í kvöld er ég að spila konsrt í Eindhoven með hálfgerðu stórbandi. Eða stórgerðu hálfbandi. Það verður nú bara kannski gaman. Gaurinn sem leiðir bandið er þrítugur japani sem talar með sterkum japönskum hreim og segir alltaf "þakka þér fyrir" þegar við kveðjumst. Hann ætlar kannski í sagnfræði í Háskólanum á Íslandi. Oho. Ójá.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home