stórkosmísk undur hafa gerst!
Hverjum hefði dottið það í hug þegar hann var lítill að læra stafina að einn daginn ætti maður eftir að éta eigin staf. Eigin staf, risastóran, úr súkkulaði. Þetta er einmitt það sem hefur gerst hér í dag. Er þetta það merkilegasta sem hefur komið fyrir mig um helgina. Sit hérna við tölvuna á sunnudagsnótt og kjammsa á risastóru E-i úr dökku súkkulaði svona rétt fyrir svefninn. Það var nefnilega Sinterklas um daginn, og þá fá allir pakka. Ég fékk líka pakka frá herra og frú núll-desibel (húsráðendur og leigusalar), og í honum voru einhvers konar perralegar lakkrísbrauðbollur og súkkulaðistafur. Jáneinei. Annars fór ég líka út að borða með Santeri herbergisfélaga og tveimur öðrum Finnum á laugardaginn (þjóðhátíðardagur Finnlands) og borðaði tapas. Síðast þegar ég borðaði tapas fengu Benni og Bragi fávitar ókeypis humarveislu...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home