Gleðilei jól allir saman til sjávar og sveita. Aldilis jólaligt hérna á jóladag, falle og stilt veur o folk a borða súkkula dajinn úð og inn. Gaf pabba bók með samansafni af mikilvægum ræðum tuttugustu aldarinnar. Það eru svo brjálaðar ræður inní þessari bók! Sérstaklega úr seinni heimsstyrjöldinni...ég var að lesa ræðu sem einhver gamall gyðingur í ghettóinu flutti fólkinu sínu. Hann vann fyrir nasistana og sendi sitt eigið fólk áfram í útrýmingarbúðir. Nú var komið að því að senda öll börnin í gettóinu í búðirnar, og í bókinni er ræðan sem hann flutti (og þetta er úrdráttur):
"In my old age I must stretch out my hands and beg: Brothers and sisters, hand them over to me! Fathers and mothers, give me your children! (Horrible, terrifying wailing among the assembled crowd)".
Ég gat ekki lesið þetta, ég varð að hætta...þetta verður svo ótrúlega nálægt manni þegar maður les þetta, sérstaklega af því að þetta eru orð sem féllu í raun og veru og voru bara ætluð þessari einu stund. Úff. Á maður að vera að blogga svona á jóladag?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home