julejule jule jól yul, yahve, jafet, nasaret
Kominn í jólaskabed, flokkur kristinna manneskja sá til þess í hádeginu í dag. Þau komu inn í matsal í litlu byggingunni stuttu eftir síðasta (og eina) prófið mitt, öll klædd í metnaðarfulla búninga...jólatré, englar og einhvers konar afrósuða og svo var einn sem var aðal, en hann var nefnilega í kóngabúning og var vitringur og var sá eini af þeim sem kunni að syngja R´nB. Svo sungu þau öll jólalög með sínu nefi og voru sæt og dúlló og með glimmer í framan og eftir sönginn gáfu þau öllum pakka með köku (góðri heimabakaðri köku!). Það gerði mig mjög glaðan, magnað þegar fólk leggur mikið á sig bara til að gera annað fólk ánægt og vill ekkert í staðinn (ókei smá jesú lovs jú flæer á kökunni en samt). Og núna þarf ég að byrja að pakka því ég fæ far heim á jólasleða flugleiða í kveld...verð vappandi hress um í Rekjaweek á morgun ef einhver vill hitta mig!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home