Flóðreyksmoli dagsins: Tim Berne, saxafónleikari og rauðvínslegið konfekt-tónskáld var staddur á körfuboltaæfingu, tvítugur að aldri. Hann var að hlúa að íþróttameiðslum þegar kunningi hans kom til hans með saxafón. Hann blés nokkra tóna fyrir Tim og bauð honum að kaupa hann. Tim leist vel á sándið í helvítis apparatinu, og ákvað að kaupa hann, djöfulsins dýrið á honum. Hann hafði aldrei lagt stund á tónlist áður, en upp frá þessu var ævi hans ráðin. Og hann er líka geðveikur gaur í dag. Ussususs. Ég hef það fyrir víst að hann lesi nótur eins og nobody's business og svo segir sagan að hann smíði tón eins og ljósmóðir drottins.
Það er samt soldið heví að hann hafi bara rekist á saxafón fyrir tilviljun og ákveðið að kaupa hann í einhverju bríaríi og verða svo eins magnaður og raun ber vitni. Þetta var þjóðmeiksdagsins. Góðar stundir.
Orðasamband dagsins: Tryllt gómreið, maður.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home