Ég var að leysa gríðarlegt vandamál sem er búið að hrjá mig allt síðastliðið ár. Tölvan mín frýs ekki lengur á 10mín fresti þegar stillt er á "Hardware Acceleration". Þetta tókst mér með því að uppfæra AGP stýri chipsettinu mínu. Magnað. Hér á bæ er engin sem kan að meta þetta en ég vona að þið gerið það. Næsta verkefni er svo að uppfæra BIOS:inn minn. Finnst ég vera kominn með nýja tölvu. Svo var ég að fá mér 19" skjá. Magnað. Annars er ekkert gott að frétta af mér. Er að fara í Reikningshaldspróf næsta mánudag sem ég er nokkuð pottþéttur að falla í. Það eina jákvæða í gangi núna er að ég sé á lífi og að Finninn, Markús Wileníus, (sennilega einn mest óþolandi maður sem litið hefur jarðarríki) er hættur í Hagfræði og þar af leiðandi í hópnum mínum. Hann skal aldrei fá að horfa á video með mér, jafnvel þó að líf hans standi eða falli með því. Vonandi flytur hann aftur til Finnlands.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home