Mér varð það ljóst í gær að ef að maður borgaði árgjald fyrir eilíft líf, svona ekki ólíkt aðild að tiltölulega eðlilegum félagasamtökum, þá kostaði það óendanlega mikið að lifa að eilífu. Og þetta fattaði ég án þess að vera í eðlisfræðinámi við þekktan háskóla erlendis. Í ljósi þessarar uppgötvunar minnar finnst mér að ég eigi að fá allar mínar einkunnir í raungreinum við MH afturvirkt hækkaðar upp í tíu komma núll. Og einhverja fálkaorðu eða eitthvað. Hvað sem er ef ég bara fæ ókeypis áfengi. Kommon. Menn eru þyrstir hérna. Captain Party calling Planet Earth hérna. Upp með brennsann. Rekiði kaupfélagsstjórann.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home