sunnudagur, mars 17

Í gær var st. Patrick's day, ef þið vissuð það ekki, föðurlandssvikarar...er annars kannski bannað að fíla Írland eftir Keltakastið í MH? Allavega drakk ég alltof alltof alltof mikinn Guinness og hefur sú úttekt úr gleðibankanum aldeilis skilað sér í vöxtum og vaxtavöxtum og ávaxtavöxtum með hryllilegri líðan í dag...þó bætti aðeins úr hinni löngu töpuðu skák að ég frelsaðist í eftirmiðdaginn, sirka fimm, og varð mér þá að orði: "ahhh" en ég fékk einmitt fullnægingu á stundinni sem ég frelsaðist.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home