þriðjudagur, mars 12

Helga Lára, frænka Ástríðar er í Háskólakórnum, sem og Heba sem var í MH og Gunnhildur sem var í MH, altso Gunnhildur rauðhærða, vinkona Öddu, sem skrifaði stjörnuspá í afmælisrit Beneventum. Móðir hennar getur rakið ættir sínar til Böðólfs og Böðmóðs sem í sameiningu námu land á Tjörnesi fyrir 1000 árum. Það getur Gunnhildur hinsvegar ekki, því hana langar ekki að standa í því. Og fyrst maður getur allt ef mann langar það nógu mikið, þá gæti verið að maður geti ekkert langi mann það nógu lítið. Með hverju orði verður rökleysa yfirritaðrar ljósari svo hér. verður punkturinn settur
Svarar þetta EKKISENS spurningunni?
PS. Mamma er ekki enn búin að opna pappakassann með nýju G4 ofurtölvunni, hvað þá hinn kassann með skannanum. Hér í tölvuherberginu verður senn orðið of fínt fyrir tölvuna.
PPS. Eg hef flensu ætla mér að hafa dauðann í flimtingum með því að grínast með það að ég muni sennilega látast af völdum þessarar flensu. Þó má deila um hvort það sé fyndið, án tillits til siðferðiskenndar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home