miðvikudagur, desember 12

( Dagný skrifar) Síðast skrifaði ég að ég ætti ekkert eftir að gera nema kaupa jólagjafir. Það var rugl. Það kom í ljós að ég átti eftir að taka klukkutíma viðtal við einhvern (sem tekur u.þ.b. 10 klukkutíma að pikka inn á tölvu, fékk ég að heyra), gera vettvangskönnun og vera með í hópavinnu. Þetta ásamt miljón öðrum hlutum þarf ég að gera fyrir sunnudaginn, vei! Annars get ég ekki beðið eftir að koma heim í jólastressið og upplifa alvöru jólastemmningu. Hér eru allir svo rólegir og það er ekki nærri eins mikið jólaskraut út um allt eins og heima. Hvað segiði um að hittast á einhverju kaffihúsi á sunnudaginn um kvöldið?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home