MOZART GEISLADISKUR FYLGIR ÞESSARI VIKU
-70 MÍNÚTUR AF TÓNLIST HANS
VIKUVIÐTAL VIÐ SIGURBJÖRN EINARSSON BISKUP
HANDRIT KIKKU
DÓRA BÝR Á MÖLTU
GEIRI SÆM OG RÚNAR ÞÓR
JÓLASKREYTINGAR
TAKT ÞÚ ÞÁTT Í VALI FORSÍÐUSTÚLKU ÁRSINS 1991
ATKVÆÐASEÐILL FYLGIR VIKUNNI
Hérna við hliðina á tölvunni liggur eintak af Vikunni frá desember 1991. Eða einmitt fyrir tíu árum. Ég man eftir þessu blaði, en ég var einmitt veikur heima og girntist þetta blað vegna þess að það fylgdi geisladiskur með Mozzaranum með. Mamma keypti þetta blað handa mér og ég varð ákaflega glaður. Inni í blaðinu má meðal annars sjá að Brynja X tók þátt í forsíðustúlku ársins, Fúsi trommari í Jagúar var í hljómsveit Geira Sæm ("Tunglið") árið 1991 og Páll Óskar kynnti Forsíðustúlkur Sam á kynningarkvöldi með alveg rosalega, rosalega vonda klippingu. Og síðan er líka viðtal við Sigurbjörn Einarsson biskup, sem tjáir okkur það að "notkun jólasveinsins á verslunarstöðum, í útvarpi og sjónvarpi er öfgafull og alls ekki holl né heilnæm börnum," varar okkur við "að láta ginnast af fagurgalanum" og segir loks "Nútímamaðurinn uppgötvar allt í einu að hann er staddur á hengiflugsbrún. Við honum blasir tómið, þetta tóma, kalda gímald guðlausrar, tilgangslausrar og afhelgaðar tilveru." Hvað ætli hann segi núna, eftir tíu ár og ein stucken falluslagaða Smáralind?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home