Djöfull verður stuð hjá sumum eftir tvá daga! Hafandi ekki séð fósturlandið í rúmt ár! AAAAAaaaa huxxxa sééð!
Ég hef gert plan um djömm næstu helga. Hver djammdagur verður helgaður ímynd þeirrar persónu er djammið snýst um. Altso ég mun djamma eins og Andrea Róbertsdóttir í kvöld, og morgundagurinn verður helgaður djammi að hætti Svala FM957. Þetta kallast sko öguð vinnubrögð. Mér finnst að það ætti að koma þessu inn í lífsleikni í tólf ára bekk. Nokkrar afburðapersónur teknar fyrir sem djamma með konunglegum brag um hverja helgi og síðan eru djammhættir þeirra brotnir niður í einingar og greindir. Þannig ætti hver sjöundabekkingur að geta fundið sinn eigin djammstíl, sem yrði jafnvel tekinn fyrir hjá næstu kynslóð sjöttubekkinga. Ekki ósvipað og blúsinn. En allir vita að blústónlist hófst sem hliðarspor stærðfræðikennara í Potsdam um miðja átjándu öld. Rétt eins og hip hop tónlist byrjaði sem tónlist hvítra krakka í úthverfum Svíþjóðar og breiddist síðan út með flóknum krókaleiðum inn í fátækrahverfi blökkumanna í New York. Altso, ég er farinn út.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home