fimmtudagur, desember 6

stakk af úr tíma hjá Gunnsteini munnsmelli og -sleiki Ólafssyni hálfvita. Sit nú á bókasafninu og bíð í hálfgerðum kvíða/hálfgerðri eftirvæntingu eftir því að hann komi hér inn og sjái mig í ruglinu. Mér finnst gaman að gremja hann í gjamsi og hamsi og gera honum svan úr reðri.
Hvað segiði annars, kæru vinir? Nú fara þau Dagný og Egill að koma JIIIIIBBBBÍÍÍÍ....hitti einmitt Skúla Skúlason í gær, hafði ekki séð hann í meira en ár. Hann leit bara vel út og fékk roða í kinnarnar þegar ég minntist á heimkomu dótturinnar og frumburðarins. Sem hann er einmitt ekki búinn að sjá í næstum ár.
Gleymdi að segja frá bókinni sem ég er að gefa út fyrir jólin. Það er spennubók um kontrapunkt og heitir Greg Morris og skuggi cantusins. Nú er hann farinn, ég meina sko ekki Greg Morris heldur Gönnsó. Ég hafði nefnilega ekki tækifæri til að skrifa það áðan, en Gunnsteinn kom akkúrat inn þegar ég var að skrifa ljótt um hann.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home