föstudagur, desember 7

Það er mannbætandi að skrifa ljótt um aðra á Internetið. Til dæmis ætla ég að bæta mann minn um eitt og hálft prósent með því að segja að Bragi Bergþórsson hefur ekki hugmynd um hvað kúlið er. Í öðru lagi finnst mér að internetið ætti að skrifast með litlum staf, þar eð það er orðið að húsgagni í vitund alheimsins, ekki ólíkt nafnorðinu ,,sófi". Engum dettur í hug að skrifa sófi með stórum staf, nema þá helst einhverjum afdönkuðum kotbændum eða karlægum astmasjúklingum. En það er auðvitað út af því að sófi er uppfinding sem er svo eldgömul að hún hefur fyrir löngu misst stóra upphafsstafinn sinn, og þykir þó engum sófinn ómerkilegri fyrir vikið. Nei, það er manndómsraun að missa stóran upphafsstaf, ekki allsendis ó-ó-ólíkt því og þegar ungur drengur missir barnatennurnar í gróðursælum dal, eða þegar hreindýr fellir horn að hausti. Og sjálfur hef ég margsinnis hugleitt að gefa frá mér stóra upphafsstafinn og taka mér lítinn í staðinn, svona til að sýna fram á að ég er þegar orðinn classicisus, tímalaus, þjóðsaga meðal auðmjúks pöpuls Íslands, aðeins tuttugu og eins árs að aldri, á meðan Guðmundur Thoroddsen mun þurfa að minnsta kosti sex ár í viðbót til að verða goðsögn í listaheiminum, og bætti ég nú mann minn um sex prósentustig.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home