Hei babbi lúlla, hei babbi lúlla. Hér er verið að spyrja um gymlar námsskrár. Eflaust eru þær til uppi á skrifstofu. Nánar tiltekið er ég staddur á bókasafni Tónó, umkringdur hrörlegum tölvukosti með gigt og alshæmers. En það er ekki til umræðu hér. Fór á æfingu míns sjálfs í morgun, og er það ein snemmsta æfing sem ég hef farið á um dagana. Hálf níu takk fyrir. Enda var hún ekki sú einbeittasta sem ég hefi setið. En þó, þá er allavega góðu aflokið löngu löngu fyrir hádegi. Daginn fyrir hádegi notaði ég í að vappa um bæinn og kíkti á útsölur í Japis. Þar voru staddir milljónir geisladiska sem grátbáðu mig um að keypa sig fyrir slikk og ingenting. Hana. Enda keypti ég a good sum of CDs for a small sum of móneys. Og nú er ég á bókasafni ´Tónó og úða í mig tónbókmenntunum og bíð þess að komast í tónlistarsögutíma. ´óóÓÓóóÓó já.
(þetta röfl var í boði kaffiskorts og laukremmu í boði Pítunnar)
og ég gæti skrifað heilmargt um Pítuna hér og nú, en það verður sennilega að bíða betri tíma. Bíðum öll spennt eftir þeirri stund.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home