Samskipti. Nútími. Tölva.
Hef nú snúið tilbaka frá Danmörku og er nokkuð sáttur við útkomu eigins sjálfs á prófinu. Söng "Ég veit þú kemur" með glæsibrag. Þau vilja sko helst að maður syngi eitthvað á eigin tungumáli. Svo var hreyfigetupróf ("motor skills and co-ordination test") og þar kom einhvur dönsk afro týpa frá Fjóni og sagði mér að herma eftir sér. Tóku fætur hans að hreyfast í afskaplega sannfærandi afróskref í takttegundinni þremur fjórðu. Ég gerði slíkt hið sama og passaði að dúa í löppunum á milli skrefa, það sýnir fram á að rytminn sé manni í blóð borinn. Síðan tók hann að syngja fallega skandinavíska afrólínu ofan á eigin fótasmell (ímynda sér Pál Óskar syngja afrískt þjóðlag við textann "heeei nana heeeei ah"). Þriðja atriðið bættist síðan ofan á allt þetta þegar hann byrjaði að klappa höndunum í einföldum en þó synkóperuðum rytma. Ég þóttist komast ágætlega frá þessu þótt að ég hafi nú kannski ekki rústað honum í skandinafrómennsku. Og nú er ég kominn heim og allt er gúdd og í gúddí. Eða hvað segir Guddi?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home