miðvikudagur, janúar 23

Frábært, frábært og aftur magnað! Guð þarf ekki að vera okkur næstur því Guðmundur er hjá okkur! Lítið til sönnunar á skeyti hans dagsett hinn 23. janúar, eða í dag, þar sem ára hans hakkar sig þrautseig í gegnum stílinn, svo sterkt að ég býst við að hann G. Thor. birtist á hverri stundu í gættinni hérna hjá mér.

Fór í morgun í sex & the city sessjón (jónsson, haha) með Tinnu og Ástríði. Við ákváðum að skella okkur allar saman í klippingu, fengum þrjú sæti hlið við hlið við hlið og hlógum, drukkum kaffi og töluðum um kynlíf. Það var frábært, fengum allar "djúpnæringarbombu" (kr.1400) og höfuðnudd og enduðum svo í brunchi á vegó. Þá klúðraði Tinna svolítið því hún setti á sig rauðan varalit en hitti ekki alveg og fékk á tennurnar. Þetta gengi ekki nema þá kannski ef hún væri Miranda. Hún fékk teina um daginn þannig að það er smá tenging. Sjálf er ég Carrie því hún er mesta beiban, líka því P. Krúþ leikur ekki í þáttunum. Ástríður er Samantha. Hafið þið annars tekið eftir því hvað Bragi er líkur Christie Turlington?
Fer í fyrró. Massetta. bleeeees

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home