Varðandi einhverfu...Var að heyra að í sílíkondalnum þarna í Ameríkunni væru farnir að fæðast óvenju hátt hlutfall af einhverfum og aspergerheilkenndum börnum. Ástæðan er víst sú að þeir sem maður hefur hingað til skilgreint sem lúða, tölvu- og stærðfræðibrjálæðinga, FÁ-tvíbura og hvað veit ég, eru í raun hálf einhverfir. Og þeir hafa hingað til aldrei komist á séns sökum lúðaskaps, nema þá þarna alltíeinu í tölvunördadalnum, þar sem áður hóplausir nördar og aumingjar þykja bara alveg gjaldgengir og fara að fjölga sér eins og brjálæðingar. (Og þið vitið hvað þeir þurfa að gera til að fjölga sér....OOOOJJJJJ!)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home