þriðjudagur, desember 6

Hæhó

Vogin hefur náð jafnvægi á ný, fékk lofsaman dóm í Mogganum í dag, sem er nú skárra blað en skeinipappírinni DV (aka. Drusluvargar). Svo ég hef verið í góðu skapi í dag. Jólin eru að koma. Það kætir mig líka. Og ég sá gamla konu í bankanum áðan sem hafði ekki hugmynd um hvernig nýju rafmagnsskjáirnir sem maður á að skrifa á virkuðu. Það kætti mig líka. Og ég er búinn að kaupa miða til Sevilla, ég fer 8 janúar og verð til sumars. Það kætir mig líka. Þar mun ég sitja nakinn og slá mig með hríslu vegna hitans á meðan ég vinn að "my bestseller" (náði einhver Laxness vísuninni?). Það mun líka kæta mig.

Jæja.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home