Tónleikar
Nemandi minn hélt einkatónleika fyrir fjölskylduna og mig ádan. Hann var bara asskoti gódur. Svoleidis crescendo diminuendo hjá stráknum ég skal segja ykkur thad.
Ég bakadi smákökur í nótt eftir ad hafa búid til 50 ljótustu jólakort aldarinnar í flýti, (var ad hugsa um ad skrifa afsökunarbeidni aftaná en fannst thad ekki nógu mikil stemmning, en thid vitid thad thá), farid á fyrirlestur, aeft mig, thvegid 3 vélar og keypt 15 jólagjafir og pakkad theim inn. Kökurnar urdu enda ekkert sérstakar. Thvílík vonbrigdi fyrir fullkomnu manísku húsmódurina. Madur tharf greinilega ad einbeita sér thegar madur er ad baka, ekki horfa á mynd um apa í sjónvarpinu og hlaupa ad píanóinu med deig á höndunum ad búa til undirspil vid jingle bells.
Hér med er ykkur öllum, og líka öllum laumulesendunum sem Svessi er ad ímynda sér, bodid á jólatónleika í Dómkirkjunni thann 28. desember klukkan 8. Fyrst madur er búin ad fljúga til Parísar til ad aefa fyrir thetta er eins gott ad einhver maeti. Ákaflega eyrna- og hjartvaent prógramm; Mozart, Beethoven, Schubert, Chopin og Ravel.
Og svo eru Ísafoldartóneikar á afmaelinu mínu, 8. jan. Líka adgengilegt prógramm.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home