mánudagur, desember 12

DV heldur áfram að leggja mig í einelti. Frétt um daginn að bókin mín ætti skilið að vera brennd. Jáhá! Af hverju ekki bara að skella sér aftur á miðaldir? Brennum bækur sem okkur mislíkar! Brennum fólk sem er leiðinlegt! Mikael Torfason getur verið eldpresturinn sem uppfyllir óskir Guðs um friðsælan og fallegan heim, lausan við óhreinindi og skít.

Ég söng á sviði Grand Rokks á föstudaginn. Ég söng slagarann "Satan er land þitt" við góðar undirtektir. Ég var reyndar ekki á staðnum, fjarverandi vegna áfengis, en þetta var líkaminn minn á sviðinu. Ég klæddist sömuleiðis nýja uppáhalds stuttermabolnum mínum sem ég föndraði um daginn vegna stríðsins á milli mín og DV. Á honum stendur "DV er Satan". Og ekki gleyma því krakkar.

blex! (hvern er ég að leika?)

óttar

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home