þriðjudagur, nóvember 29

Höfuðkúpa!

Úff. Fékk hauskúpu (falleinkunn) í DV í dag fyrir bók mína. Gagnrýnandinn er bersýnilega mjög reiður út í mig, gefur í skyn að ég sé heimskur, sem mér finnst mjög smekklaust í bókadómi. Áfram DV! Og mér er jafnframt stillt upp á forsíðu blaðsins, lítil mynd af mér og forsíðu bókarinnar og höfuðkúpunni og orðin "Barnaklám í jólabók", en þó ekki á aðalforsíðuna, þar er mynd af barnaperra, svo skyndilega verður ljósmyndin af mér í mjög vafasömu samhengi. Já, ef DV getur mögulega komið orðinu Barna-x og x táknar eitthvað óbragð í munninn, þá grípa þeir tækifærið. Hey, Mambó!

Svo ég er búinn að vera í sjokki í dag. Bragi, viltu kæta mig og eyða frítíma þínum í að semja óperu eða óð til mín, eða óð til gleðinnar til mín, eitthvað álíka, og svo syngja hann (eða hana ef þú semur óperu) fyrir mig á Aðfangadag, á meðan ég og mamma og pabbi sitjum við kvöldverðaborðið og snæðum þær gersemar sem hún móðir mín Alena töfrar fram?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home