þriðjudagur, nóvember 22

Takk kærlega fyrir að fíla bókina. Ég ætti að líma þessar setningar á kápuna, það myndi væntanlega auka söluna. "Drulluspennandi bók!"

Var að koma úr viðtali við Stúdentablaðið. Ég held að ég sé byrjaður að fá ógeð á þvi að tala um bókina, greina hana og hvað ég sé að "pæla". Ég er svo takmarkaður að ég segi alltaf sama hlutinn, en reyni samt alltaf að vera jafn hissa yfir því sem ég er að segja. En maður þarf að fylgja barninu sínu yfir götuna, annars verður það fyrir bíl.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home