sunnudagur, nóvember 13

Fuck What You Heard!!

Sæl! Það virðist nú einhver fart vera komin á þennan blogg aftur... Gott er það.

Lífið er nice. Án lífsins værum við ekki til. Þannig standa málin kæru vinir og þannig stend ég... Helgin er búin að vera massíft letidæmi frá upphafi til enda (eða þannig. Sunnudagur í dag og enn er ekki allt glatað). En þannig eru nú hlutirnir bara stundum, ekki satt?.

Ég fór á massíva harcore-tónleika með Calí-krúinu mínu í Kaupmannahöfn á fimmtudaginn var, að Stensgade 30. Lineup: FC5, Komback Kid og Bane. Ég er að tala um freakin staightedge-karatekickdancing-moshpittslamming-maniac-tónleika með krúnurökuðum, blackcross-tattúeruðum dönskum táningum. Ákvað að vera ekkert að fela mig útí kannti heldur tók alveg virkan þátt í funnelpittum og ég veit ekki hvað... Jamie Lee breytti gersamlega um personuleika á þessari samkundu og breyttist í grænan Hulk með svart belti í Tae-kwan-dó. Aldrei hef ég séð manneskju taka þvílíkum stakkaskiptum á jafn stuttum tíma. Freeaaky! Ég er hinsvegar ekkert að spá í að leggja þetta fyrir mig en þetta kúltúr er nú bara ekki svo slæmt þrátt fyrir allt.

P.s. Ég veit ekki með ykkur en ég er allavega að fara til Rómar um jólin... Og svo er ég að fara til Budapest á fimmtudaginn.

See ya Punks!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home