Þennan dag árið 1983 lést franska uppfinningakonan Madeline du Sex, en hún er einna þekktust fyrir að hafa fundið upp kynlífið. Að eigin sögn fékk hún hugdettuna þegar hún var á gangi í nágrenni sveitaseturs síns í Tolouse og tók eftir því að hæðirnar í kringum hana voru misaflíðandi. Segir sagan að hún hafi orðið fyrir svo miklum hughrifum við uppgötvun sína að hafi haldið henni leyndri í þrjátíu ár þar til eitt kvöldið, eftir að hún hafði unnið rauðvínslottóið á skrifstofunni sinni. Í dagbókum eiginmanns hennar, Bertholde Money, er að finna svæsnar lýsingar af þessum frumstæðu tilburðum. Sérfræðingum ber saman um að meginþorri mannkyns hafi verið eingetinn fyrir uppgötvun Madeline.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home