sunnudagur, júní 19

Dagar mínir eru að renna í eitt. Ég sit allan daginn og vinn að MA-ritgerð. Samt, á undarlegan hátt, nánast pervískan, þá finnst mér það gaman (gott?). Eftir viku fer ég, ásamt Gústa og hugsanlega Hlyni, til Finnlands og svo til St. Petersburg og eitthvað suður á bóginn. Enda líklega í Búdapest.

Annars fékk ég þær (mögulegu) gleðifréttir í vikunni að það séu 85% líkur á því að Edda/Mál og menning gefi út skáldsögu eftir mig næsta haust/jól. Ef svo fer, þá verður hugljúf ástarsaga jólabókin í ár. Í ljósi þessa þá mun ég ekki lengur heita Óttar Martin, heldur mun framvegis hlýða nafninu Ótt-Art, eða þá Ó.M.Art.

kv. Ótt-Art

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home