Auður ! Því miður er þetta blogg svolítið þannig að enginn les eða kommenterar á það sem hinir skrifa. Ég geri það samt alltaf og segi því hér með að Toby er magnaður. Mér finnst hins vegar Spæderman ekkert sérstök en ég dánlódaði henni hérna heima á netinu og það voru ekkert sérstök gæði.
Það er búið að vera frábært veður hérna í svona viku og ég nenni ekki rassgat að læra. Ég tek alltaf með mér bækurnar út og þykist vera að lesa en get það eiginlega ekki út af sólinni og leti.
Ég er ekki enn búin að fá vinnu heima og fæ líklega enga vegna þess að ég er ekki með lögheimili í Reykjavík. Ég fæ allavega ekki vinnu hjá borginni. Við komum samt heim kringum 8 júní.Jibbí!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home