fimmtudagur, maí 23

Ég vildi bara benda á eina bjúútifúl heimasíðu sem heitir www.mariaksteinsson.com. Afar fjölhæf stúlka þar á ferð. Hér á eftir fer eitt ljóð eftir hana (birt án leyfis höfundar):


Silfurlitaður kristalsalur einmanaleikans

Ég stend alein
Á köldu dansgólfinu
Í silfurlituðum kristalsal einmanaleikans
Þögn gærdagsins
Bergmálar í eyrum mínum
Og tár morgundagsins
Renna niður vanga minn
Á meðan ég bíð
Eftir að einhver komi
Og bjóði mér uppí dans.

Á síðunni má einnig finna fjölda málverka eftir hana, svo og myndir frá Ungfrú Reykjavík '97. Njótið vel.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home